Myndasíðan | |||||||||||||||
31.12.00
Fjölskylduboð hjá Begga frænda Myndirnar komu frekar illa út. Ég er ekki að meina að fólkið hafi komið illa út, heldur eru þær eitthvað svo grófar og óskýrar. Annaðhvort var lýsingin svona óheppileg eða það var eitthvað kám á linsunni.
Jólin í Rennes Hér eru myndirnar sem við tókum um jólin í Rennes í Frakklandi. Söguna á bakvið myndirnar má finna í dagbókinni
Um miðjan desember lenti ég í vandræðum með bloggerinn sem ég nota til að uppfæra myndasíðuna. Nú er allt komið í lag svo ég get bloggfest tvær færslur sem ég skrifaði fyrir tveimur vikum. Á eftir ætla ég að setja inn myndirnar sem ég tók í Frakklandi um jólin. Innflutningspartí hjá Bjarna
Vegna bilunar... hjá nordu.net (nánari skýringar í dagbók) set ég tvær síður hér án frekari málalenginga: (1) litlu jólin (2) Solla (skrifað 15. des) 9.12.00
Aðventufagnaður Ég gleymdi að taka myndir á aðventufagnaði stærðfræðiskorar. Fattaði það ekki fyrr en fólkið var að fara. Tók því bara myndir af gestabókinni og fólki að klæða sig í útifötin. 5.12.00
dæmahópur 4 og matarboð Nokkrar myndir af krökkunum sem ég var að kenna eðlisfræði og svo myndir úr matarboði. Baldur sofnaði uppí sófa. 3.12.00
Myndir af Kisu Ein mynd af Stellu nývaknaðri og svo vorum við að prófa að stela uppskrift úr matreiðslubók í Heilsuhúsinu. Hún reyndist þó ekki vera læsileg. Flottustu myndirnar eru samt af Kisu. |